{"product_id":"jolabokaflodid-i-halondunum","title":"Jólabókaflóðið í Hálöndunum","description":"\u003cdiv\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eMirren Sutherland er stödd í ævagömlum kastala með turnspírum, fjórum bókasöfnum og völundarhúsi. Landið er komið í vetrarbúninginn fyrir jólin og ungur, laglegur landeigandi hefur ráðið hana til að finna dýrgrip sem mögulega liggur falinn á landareigninni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eHvað með það þótt kastalinn megi muna fífil sinn fegri, sé að hruni kominn og enginn búi þar lengur nema hinn alvarlegi Jamie McKinnon og ráðskona hans? Og hvað með það þótt óveðursský hrannist upp og hafið ýfist? Skítt með það líka að dökkhærði, dimmeygi Theo Palliser, sem fór svo kæruleysislegum höndum um hjarta hennar, sé mættur í sömu erindagjörðum. Mirren ætlar að njóta þess að vera víðs fjarri ys og þys London, litlu hljóðbæru íbúðarholunni og leiðindavinnunni. Hún ætlar að hunsa daðurslegt augnaráð bóksaladurtsins, grúska í fortíð McKinnon-ættarinnar og leysa ráðgátuna sem lögð hefur verið fyrir þau. \u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eJá, Mirren ætlar sér þetta allt en skoski veturinn og forlögin hafa lag á því að þyrla öllum áætlunum mannfólksins í loft upp. \u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eSjálfstætt framhald af \u003ci\u003eJólabókarleitinni \u003c\/i\u003eeftir skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan, en bækur hennar hafa selst í fimmtán milljónum eintaka og slegið í gegn hjá lesendum á Íslandi.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003e\u003ci\u003eThe Secret Christmas Library\u003c\/i\u003e, Jenny Colgan, 2025\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHelga Soffía Einarsdóttir þýddi, 2026\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eKilja, 135 x 200 mm\u003cbr\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e368 blaðsíður\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"Angústúra","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48972015730845,"sku":null,"price":4490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0490\/3763\/9837\/files\/Jolabokaflodid.png?v=1792777885","url":"https:\/\/angustura.is\/products\/jolabokaflodid-i-halondunum","provider":"Angústúra","version":"1.0","type":"link"}