Dagbók frá Gaza

Dagbók frá Gaza

Dagbók frá Gaza

4.990 kr.

7. október – 30. desember 2023

Menningarmálaráðherra palestínskra stjórnvalda var að synda í sjónum þegar sprengjum tók að rigna yfir Gaza. Í stað þess að halda heim á Vesturbakkann ákváðu hann og sonur hans á unglingsaldri að halda kyrru fyrir, enda óraði þá ekki fyrir því sem koma skyldi. Með dagbókarskrifum sínum veitir Atef Abu Saif nístandi innsýn í baráttu Palestínumanna við að halda í lífi.

Palestínski rithöfundurinn Atef Abu Saif (f. 1973) hefur meðal annars skrifað skáldsögur, smásögur og bók um stjórnmál. Brot úr Dagbók frá Gaza hafa verið birt reglulega í vestrænum fjölmiðlum frá upphafi árása Ísraelshers á Gaza haustið 2023, og eru meðal mikilvægustu vitnisburða sem þaðan berast. Bókin er gefin út í ellefu löndum samtímis og rennur allur ágóði af sölu hennar til hjálparstarfs á Gaza.

  • Don’t Look Left, Atef Abu Saif, 2024
  • Bjarni Jónsson þýddi 2024
  • Bókarhönnun: Snæfríð Þorsteins
  • Saumuð kilja, 110 x 180 mm
  • 344 blaðsíður