Jakaranda
Jakaranda
4.290 kr.
Milan býr í París ásamt foreldrum sínum. Móðir hans er frá Rúanda en er harðákveðin í því að tala aldrei um fortíðina. Dag einn birtist ungur frændi frá Kigali og þeir Milan tengjast bræðraböndum. Þegar frændinn hverfur eins snögglega og hann kom er forvitni Milans vakin. Í leit að uppruna sínum opnast augu hans fyrir landi og fjölskyldu sem hann vissi ekki að hann ætti.
Áhrifamikil fjölskyldu- og þjóðarsaga. Bók um sársauka og reiði, en fyrst og fremst von, fyrirgefningu og viljann til að sættast. Önnur verðlaunabók eftir rúandsk-franska rithöfundinn Gaël Faye, en hann sló í gegn með Litla landi sem kom út á íslensku árið 2020.
Umsagnir um Litla land:
„Galdur góðs skáldskapar getur fært okkur enn nær fólkinu en tölurnar einar.“ Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðinu ★★★★1/2
„Þetta er bók sem spilar á tilfinningaskalann og tekst að vekja samlíðan lesandans með heillandi texta af skelfilegum atburðum,“ Rebekka Sif Stefánsdóttir, Lestrarklefanum ★★★★1/2
„Litla land, verk sem fjallar sannarlega um óskiljanlegan ófrið, ömurlegan hrylling og harmleik en líka um friðinn á undan stríðinu, bernskuna og sakleysið.“ Eiríkur Guðmundsson, Víðsjá
„Og bók sem skrifuð er um lífsreynslu lítils drengs í Rúanda segir meira, hefur dýpri áhrif á okkur en þúsund fréttir og þúsund skýrslur. Hún gefur okkur sýn inn í okkar heim, ekki síður en þann sem lýst er.“ Ögmundur Jónasson, Morgunblaðinu
- Jacaranda, Gaël Faye
-
Rannveig Sigurgeirsdóttir þýddi, 2026
- Bókarhönnun: Snæfríð Þorsteins
- Saumuð kilja, 110 x 180 mm
- 284 blaðsíður