Koma jól?

Koma jól?

4.200 kr.

Jólaljóðabók eftir Hallgrím Helgason og Rán Flygenring sem kveðst á við fræga bók Jóhannesar úr Kötlum, Jólin koma. Hér er að finna nýjustu fréttir af Grýlu og Jólakettinum og þá stíga hinar jökulhressu Grýludætur, systur jólasveinanna, fram úr þúsund ára löngum skugga bræðra sinna og arka til byggða, hver með sínu lagi og hrekkjabrögð í farteskinu: Bjalla, Grýlurós, Litla ljós, Fantasía, Stelpustoð, Töskubuska, Bokka, Tertuglöð, Fiturönd, Augasteinastara, Áttavillt, Svangatöng og Kortasníkja. 

Kvæðin heita Koma jól?, Skógjafatíð, Jólasystur, Grýlukvæði, Grýluvísa, Jólakötturinn og Íslandsjól. Myndir bókarinnar eru ristar í dúk.

„Hér mætast tveir hæfileikaríkir listamenn og útkoman gleður augu, eyru og hjarta, eins og við var að búast.“  Helgi Snær Sigurðsson, Morgunblaðinu ★★★★★ 1/2

Tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar fyrir myndlýsingar. 

  • Koma jól? Hallgrímur Helgason og Rán Flygenring, 2022
  • Kilja, 127 x 196 mm
  • 36 blaðsíður