Kramp

Kramp

Kramp

3.500 kr.

Hin sjö ára M slæst í för með föður sínum D milli bæja þar sem hann selur byggingarvörur frá framleiðandanum Kramp á tímum Pinochet-harðstjórnarinnar í Chile. Saklaust barnið heillast af heimi farandsölumannanna og gerir sér aðeins óljósa grein fyrir þeirri pólitísku spennu sem kraumar undir niðri í samfélaginu.

Chileski rithöfundurinn María José Ferrada (f. 1977) fangar á forvitnilegan hátt feðginasamband á barmi óafturkræfra breytinga út frá sjónarhorni barns sem leitast við að skýra flókna heimsmynd sína. Í senn nostalgísk, hættuleg og full af gleði og undrun.

Bókin hlaut þrenn virtustu bókmenntaverðlaun Chile.

  • Kramp, María José Ferrada
  • Jón Hallur Stefánsson þýddi, 2023
  • Bókarhönnun: Snæfríð Þorsteins
  • Saumuð kilja, 110 x 180 mm
  • 128 blaðsíður