Ótrúleg ævintýri Brjálínu Hansen 1

Ótrúleg ævintýri Brjálínu Hansen 1

3.400 kr.

Pálína Klara Lind Hansen, stundum kölluð Brjálína, er í senn meistaraspæjari, ofurfimleikastúlka og heimsmeistari í brjáli. Hún skilur ekki hvers vegna foreldrar hennar eru að skilja og hún að flytja í plasthús í hinum enda bæjarins, burt frá vinunum og skólanum og sínu fullkomna heimili, kóngsríkinu Brjálivíu. Pálína vill fá sitt gamla líf til baka og hún skal sko ná sínu fram!

Kóngsríkið mitt fallna er fyrsta bókin af þremur í bókaflokknum Ótrúleg ævintýri Brjálínu. Stórkostlega skemmtileg, sorgleg, hjartnæm og hugljúf saga eftir Finn-Ole Heinrich og Rán Flygenring sem hlotið hefur margvíslegar viðurkenningar og verðlaun, meðal annars hin virtu þýsk-frönsku barnabókaverðlaun.

„Þessi bók er líka holl lesning okkur foreldrum, hún er þörf áminning fyrir okkur sem tökum ákvarðanir fyrir börnin okkar á hverjum degi og hugum kannski ekki nógu vel að því hvernig þær ákvarðanir koma við börnin okkar.“ Lilja Magnúsdóttir, Lestrarklefanum

  • Die erstaunlichen Abenteuer der Maulina Schmitt – Mein kaputtes Königreich, Finn-Ole Heinrich og Rán Flygenring
  • Jón St. Kristjánsson þýddi, 2018
  • Innbundin, 140 x 215 mm
  • 176 blaðsíður