Ótrúleg ævintýri Brjálínu Hansen 2

Ótrúleg ævintýri Brjálínu Hansen 2

3.400 kr.

Pálína Klara Lind Hansen, stundum kölluð Brjálína, þarf að sætta sig við nýtt líf nú þegar mamma hennar er komin í hjólastól og pabbi hennar, Maðurinn, er byrjaður að hitta aðra konu. Það reynist henni ekki auðvelt en það er aldrei lognmolla í kringum Pálínu: Hún rænir Sebru til að reyna að koma vitinu fyrir Manninn, stofnar ísfyrirtæki með vinunum, sér njósnafélaginu fyrir verkefnum, stækkar vaxmyndasafnið sitt og skipuleggur ævintýralega fjársjóðsferð á æskuslóðir foreldra sinna með mömmu sinni, Páli, besta vini sínum, afa Osti hershöfðingja, Lúdmílu heimahjúkrunarkonu, Loga, Rósa og Kurra.

Beðið eftir kraftaverki er önnur bókin af þremur í bókaflokknum Ótrúleg ævintýri Brjálínu Hansen

„Ég gat ekki lagt bókina frá mér þegar hún komst í hendurnar á mér, ég get ekki beðið eftir framhaldinu og sömu sögu segja þeir krakkar sem hafa lesið bækurnar tvær og ég hef talað við,“ skrifar Lilja Magnúsdóttir, Lestrarklefanum ★★★★★

  • Die erstaunlichen Abenteuer der Maulina Schmitt – Warten auf Wunder, Finn-Ole Heinrich og Rán Flygenring
  • Jón St. Kristjánsson þýddi, 2019
  • Innbundin, 140 x 215 mm
  • 200 blaðsíður