HÚS

HÚS

8,990 kr.

Er tómthús tómt hús? Hvað eru eiginlega tannstafir, karnap og sniglaform? Hvers vegna snúa svalir oftast í suður? Er hægt að byggja hús án útveggja?

Á Íslandi hefur verið byggð í meira en þúsund ár. Fyrst bjó fólk í torfbæjum, síðan í timbur- og steinhúsum og enn síðar í margs konar húsum úr steinsteypu og jafnvel í kúluhúsum. Hér kynnumst við 40 ólíkum húsum sem voru eða eru heimili fólks. Öll hafa þau sögu að segja um tækni og tísku, um það hvernig fólk lifir og hugsar á hverjum tíma, hvað skiptir það máli og hvaða möguleika það hefur til að búa sér heimili. Íslensk húsasaga er nefnilega samfélagsspegill og með því að kynnast henni fáum við betri skilning á umhverfi okkar.

Anna Dröfn Ágústsdóttir sagnfræðingur og Guðni Valberg arkitekt hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir frjótt samstarf en þau eru höfundar hinna vinsælu bóka Reykjavík sem ekki varð og Laugavegur. Í bókinni HÚS taka þau höndum saman við teiknarana Atla Sigursveinsson, sem teiknar öll húsin í bókinni, og Diddu Flygenring, sem fylgir lesendum í gegnum sögu þeirra. Útkoman er forvitnileg bók sem opnar börnum jafnt sem fullorðnum heim íslenskrar byggingarsögu frá landnámi til dagsins í dag.

  • Anna Dröfn Ágústsdóttir, Guðni Valberg og Atli Sigursveinsson 2026
  • Teikningar: Atli Sigursveinsson og Didda Flygenring
  • Bókarhönnun: Studio Studio
  • Innbundin, 210x270mm
  • 112 blaðsíður