Á fjarlægri strönd

Á fjarlægri strönd

Á fjarlægri strönd

2.500 kr.

Lorna er skólastjóri á litlu skosku eyjunni Mure, friðsælum stað þar sem allir hjálpast að. En staðarlæknirinn er kominn á aldur og enginn fæst til að taka við af honum. Í fjarlægum flóttamannabúðum gerir Saif að sárum ungs drengs. Saif er sýrlenskur flóttamaður en hann er líka læknir sem er einmitt það sem íbúar Mure þurfa á að halda. Saif er boðinn velkomin til Mure en getur hann fundið þar frið?

Hliðarsaga og þriðja bókin í bókaflokknum um Flóru og sumareldhúsið á Mure.

Yndisleg saga eftir metsöluhöfundinn Jenny Colgan sem heillað hefur lesendur um allan heim með hugljúfum og skemmtilegum bókum sínum. Á fjarlægri strönd er sjöunda bók höfundar á íslensku en áður hafa komið út Litla bókabúðin í hálöndunum, þriggja bóka flokkurinn um Litla bakaríið við Strandgötu og tvær bækur af fjórum í Mure bókaflokknum.

  • A Distant Shore, Jenny Colgan
  • Ingunn Snædal þýddi, 2020
  • Kilja, 135 x 200 mm
  • 128 blaðsíður