Litla bakaríið við Strandgötu

Litla bakaríið við Strandgötu

Litla bakaríið við Strandgötu

3.200 kr.

Líf Pollyar Waterford er heldur dapurlegt: Fyrirtækið er gjaldþrota, fína íbúðin horfin undir hamarinn og kærastinn fluttur heim til mömmu. Sárblönk neyðist Polly til að flytja í hrörlegt hús í litlu sjávarþorpi í Cornwall þar sem hún þekkir ekki nokkurn mann. Til að gleyma sorgum sínum hellir hún sér út í það sem veitir henni mesta ánægju í lífinu: að baka brauð. Fljótlega rennur þorpið á lyktina og fyrr en varir hefur Polly tekið við rekstri bakarísins á staðnum.

Hér kynnist hún litríkum þorpsbúunum: sjómanninum Tarnie og skipsfélögum hans, myndarlega bandaríska býflugnabóndanum Huckle og ríka, skrautlega vini hans Reuben, skapilla bakaríseigandanum Gill Manse og hinum óframfærna Jayden, svo ekki sé minnst á Kerensu, kjaftforu og hressu vinkonuna úr borginni.

Hugljúf og heillandi saga um konu sem þorir að hefja nýtt líf. Fyrsta bókin í þríleik.

„Stórgóð bók sem óhætt er að mæla með.“ Sæunn Gísladóttir, Lestrarklefanum

  • Little Beach Street Bakery, Jenny Colgan
  • Ingunn Snædal þýddi, 2017
  • Kilja, 135 x 200 mm
  • 436 blaðsíður