Uppljómun í eðalplómutrénu

Uppljómun í eðalplómutrénu

Uppljómun í eðalplómutrénu

3.500 kr.

Fjölskylda Bahar flýr Teheran í kjölfar ofsókna í byltingunni árið 1979 og sest að fyrir utan afskekkt þorp í von um að geta lifað í friði. Enginn fær þó komist undan brjálæðinu sem ríður yfir landið og snertir bæði lifandi og látna, aldna og unga. Mögnuð írönsk saga um mátt ímyndunarafsins gagnvart grimmd og miskunnarleysi. Persneskt töfraraunsæi. Fjórtánda bókin í áskriftarröð Angústúru.

Íranski rithöfundurinn Shokoofeh Azar (f. 1972) starfaði sem blaðamaður í heimalandinu en eftir ítrekaðar fangelsanir sá hún sig tilneydda til að flýja land og fékk pólitískt hæli í Ástralíu árið 2011. Uppljómun í eðalplómutrénu er fyrsta skáldsaga höfundar og hlaut Azar fyrir hana tilnefningu til alþjóðlegu Booker-verðlaunanna 2020.

„Óska þess að sem flestir lesi þessa bók því þetta er ævintýralegur lestur." Jórunn Sigurðardóttir, RÚV

„Mér finnst áhugavert að fá svona sögu frá manneskju sem var þarna." Kristján Hrafn Guðmundsson, RÚV

„Ímyndunarafl höfundar á sér engin mörk ... Ég algjörlega hvarf inn í [bókina].“ Rebekka Sif Stefánsdóttir, Lestrarklefanum

  • The Enlightenment of the Greengage Tree, Shokoofeh Azar
  • Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi, 2020
  • Eftirmáli: Maríanna Clara Þorsteinsdóttir
  • Bókarhönnun: Snæfríð Þorsteins
  • Saumuð kilja, 110 x 180 mm
  • 336 blaðsíður