Á nóttunni er allt blóð svart

Á nóttunni er allt blóð svart

Á nóttunni er allt blóð svart

3.500 kr.

Þegar Alfa Ndiaye treystir sér ekki til að veita æskuvini sínum Mademba Diop náðarhöggið þar sem hann liggur illa særður milli skotgrafa í fyrri heimsstyrjöldinni brestur eitthvað innra með honum og hefndarþorsti heltekur hann. Í fyrstu dást félagarnir að hugrekki Alfa en þegar voðaverkunum linnir ekki hættir þeim að lítast á blikuna.  

Fransk-senegalski rithöfundurinn David Diop varpar ljósi á fáránleika skotgrafahernaðarins sem einkenndi fyrri heimsstyrjöldina, þar sem um tvö hundruð þúsund fótgönguliðar frá Vestur-Afríku létu lífið fyrir Frakkland. Afrísku hermennirnir gengu undir nafninu Chocolats vegna húðlitarins og var ætlað að verkja skelfingu hjá óvininum sem mannætur og villimenn vopnaðir sveðjum.

„Þetta er æði myrk saga, grimm og djöfulleg, um brostna drauma og það hvernig stríðið máir út mennskuna og öll mörk ásættanlegrar hegðunar skriðna.“ Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðinu ★★★★ 1/2 

„Heim­ur bók­ar­inn­ar er ein­stak­ur og ger­ir lest­ur­inn vel þess virði. Lýs­ing­arn­ar eru ekki óþarf­ar, held­ur neyða okk­ur til að horf­ast í augu við and­styggi­leg­an heim þar sem ný­lendu­hyggja og stríðs­rekst­ur Evr­ópu­þjóða ganga í eina sæng.“ Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir, Stundinni

  • Frère d'âme, David Diop, 2018
  • Ásdís Rósa Magnúsdóttir þýddi og skrifaði eftirmála, 2022
  • Bókarhönnun: Snæfríð Þorsteins
  • Saumuð kilja, 110 x 180 mm
  • 144 blaðsíður