Á nóttunni er allt blóð svart
Á nóttunni er allt blóð svart
3.500 kr.
Þegar Alfa Ndiaye treystir sér ekki til að veita æskuvini sínum Mademba Diop náðarhöggið þar sem hann liggur illa særður milli skotgrafa í fyrri heimsstyrjöldinni brestur eitthvað innra með honum og hefndarþorsti heltekur hann. Í fyrstu dást félagarnir að hugrekki Alfa en þegar voðaverkunum linnir ekki hættir þeim að lítast á blikuna.
Fransk-senegalski rithöfundurinn David Diop varpar ljósi á fáránleika skotgrafahernaðarins sem einkenndi fyrri heimsstyrjöldina, þar sem um tvö hundruð þúsund fótgönguliðar frá Vestur-Afríku létu lífið fyrir Frakkland. Afrísku hermennirnir gengu undir nafninu Chocolats vegna húðlitarins og var ætlað að verkja skelfingu hjá óvininum sem mannætur og villimenn vopnaðir sveðjum.
„Þetta er æði myrk saga, grimm og djöfulleg, um brostna drauma og það hvernig stríðið máir út mennskuna og öll mörk ásættanlegrar hegðunar skriðna.“ Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðinu ★★★★ 1/2
„Heimur bókarinnar er einstakur og gerir lesturinn vel þess virði. Lýsingarnar eru ekki óþarfar, heldur neyða okkur til að horfast í augu við andstyggilegan heim þar sem nýlenduhyggja og stríðsrekstur Evrópuþjóða ganga í eina sæng.“ Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir, Stundinni
- Frère d'âme, David Diop, 2018
- Ásdís Rósa Magnúsdóttir þýddi og skrifaði eftirmála, 2022
- Bókarhönnun: Snæfríð Þorsteins
- Saumuð kilja, 110 x 180 mm
- 144 blaðsíður