Blaka

Blaka

5.490 kr.

Hún skýst fram hjá okkur í myrkrinu, fim eins og fimleikastelpa, ör eins og orrustuþota. Stórhættuleg. Æsispennandi.

Í svartasta skammdeginu undirbúa Vaka, Kókos og pabbi sig fyrir sólarlandaferð. Þau ætla að heimsækja vatnsrennibrautagarð, taka þátt í sandkastalakeppni og belgja sig út af ís. En þegar þau koma auga á rammvillta leðurblöku flögrandi í húminu grípur um sig skelfing í borginni og áform þeirra fljúga út í veður og vind. Óhrædd við myrkrið tekur Vaka afdrifaríka ákvörðun sem snýr veröldinni á hvolf.

Rán Flygenring er einn þekktasti myndabókahöfundur landsins. Síðasta bók hennar, Tjörnin, seldist upp eins og skot og hlaut fjöldamörg verðlaun. Rán fékk jafnframt Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2023 fyrir bókina Eldgos.

  • Rán Flygenring, 2025
  • Ráðgjöf við bókarhönnun: Studio Studio
  • Innbundin, 190x270mm
  • 76 blaðsíður