Egill spámaður
Egill spámaður
3.200 kr.
Egill vill helst ekki tala. Hann vill hafa hlutina í föstum skorðum og fylgist með sjávarföllunum með aðstoð almanaks. Dag einn verður nýja stelpan í bekknum á vegi hans og setur skipulag tilverunnar í uppnám. Samt virðist allt svo rétt, hvernig sem á því stendur.
Egill spámaður eftir Lani Yamamoto er einstök barnabók sem vakið hefur mikla hrifningu lesenda og gagnrýnenda. Hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barnabókmenntaverðlauna Reykjavíkurborgar og er tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Er það í annað sinn sem Lani hlýtur tilnefningu til síðastnefndu verðlaunanna en bók hennar Stína stórasæng var tilnefnd til þeirra virtu verðlauna árið 2014. Stína stórasæng var þýdd á 10 tungumál og meðal annars gefin út af Victoria & Albert Museum í Bretlandi.
„Egill spámaður fjallar á sinn hljóðláta hátt um klassísk viðfangsefni sem flest börn geta tengt sig við og reynast mörgum erfið viðfangs, það er óöryggi og óttann við að verða að athlægi, þörf fyrir reglufestu og mikilvægi vináttu og félagsskapar. Lani Yamamoto skapar hér áhugaverða aðalpersónu með sérstakt áhugamál og náin tengsl við náttúruna sem leikur stórt hlutverk í sögunni.“ Úr umsögn dómnefndar Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
„Ég var einstaklega hrifin af þessari bók og mæli með henni fyrir lesendur á öllum aldri.“ Rebekka Sif, Lestrarklefanum ★★★★★
„Einstaklega falleg og ljúf saga, sögð jafnt í máli og myndum.“ Brynhildur Björnsdóttir, Fréttablaðinu ★★★★
„Sagan er svo falleg og útpæld og sögð af svo mikilli næmni og yfirvegun og innsæi.“ Rán Flygenring
„Lani Yamamoto er listamaður, bækur hennar eru listaverk.“ Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Orð um bækur
- Egill spámaður, Lani Yamamoto
- Bókarhönnun: Ármann Agnarsson, 2019
- Innbundin, 165 x 200 mm
- 64 blaðsíður