Engir hnífar í eldhúsum þessarar borgar
Engir hnífar í eldhúsum þessarar borgar
3.500 kr.
Mögnuð fjölskyldusaga sem gerist á árunum 1963–2005 í Aleppo, Sýrlandi. Borgin, áður vagga menningar og ríkidæmis, er bókstaflega að hrynja og endurspeglar hún andlegt hrun fjölskyldunnar, vina þeirra, fjandmanna og elskenda í grimmilegu einræðinu.
Nýtt verk eftir þekktasta samtímahöfund Sýrlands, Khaled Khalifa, sem búsettur er í Damaskus. Fyrir skáldsöguna hlaut hann Naguib Mahfouz-bókmenntaverðlaunin, auk þess sem hún var tilnefnd til Arab Man Booker-verðlaunanna. Engir hnífar í eldhúsum þessarar borgarinnar er önnur bók Khalifa á íslensku. Sú fyrri, Dauðinn er barningur, kom út hjá Angústúru árið 2019.
„Stórkostleg skrif.“ – The Guardian
- La Sakakin fi Matabikh hadhihi al madina, Khaled Khalifa
- Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi, 2021
- Eftirmáli: Elísa Björg Þorsteinsdóttir
- Bókarhönnun: Snæfríð Þorsteins
- Saumuð kilja, 110x180 mm
- 336 blaðsíður