Fínir drættir leturfræðinnar

Fínir drættir leturfræðinnar

3.990 kr.

Fínir drættir leturfræðinnar var gefin út árið 1987 á sjö tungumálum, en kemur nú út í fyrsta skipti á íslensku. Bókin fjallar á hnitmiðaðan og aðgengilegan hátt um þá þætti sem skipta sköpum þegar læsileiki texta er annars vegar, svo sem bókstafina, orðið, línuna og andrýmið. Hér er þó um meira en handbók að ræða. Hvernig má það vera, spyr Jost Hochuli, að farið sé eftir öllum kúnstarinnar reglum en yfirbragð bókarinnar sé samt sem áður leiðinlegt? Hér má finna ýmsar lausnir, ekki síst í umbroti og framleiðslu bókarinnar sjálfrar.

Svissneski leturfræðingurinn Jost Hochuli hefur lengi notið alþjóðlegrar hylli á sviði bókahönnunar. Hann hefur kennt um árabil, meðal annars í Zürich og í heimabæ sínum St. Gallen í Sviss, skrifað bækur á sviði grafískrar hönnunar og ritstýrt og hannað ritraðir í faginu. Jost Hochuli hefur margoft haldið sýningar bæði í heimalandinu Sviss sem og víða um heim. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir bókahönnun, til að mynda í samkeppnunum Fegurstu bækur Sviss og Fegurstu bækur í heimi.

  • Das Detail in der Typografie, Jost Hochuli
  • Birna Geirfinnsdóttir, Marteinn Sindri Jónsson og Gunnar Þór Vilhjálmsson þýddu, 2022
  • Kilja með flipum, 125x210mm
  • 64 blaðsíður