Laugavegur

Laugavegur

10.900 kr.

Byggingar- og verslunarsaga aðalgötu Reykjavíkur sögð í máli og myndum og tilraun gerð til að útskýra hvers vegna hún hefur þróast með þeim hætti sem raun ber vitni. Líklega endurspeglar engin gata á landinu jafn vel tíðarandann í borginni á hverjum tíma og Laugavegur. Fjallað er um þróun borgarrýmisins og húsin sem eru, voru og ekki urðu, en í bókinni er að finna fróðleik um fleiri en hundrað húsnúmer við Bankastræti og Laugaveg.

Bókin er afrakstur samstarfs Önnu Drafnar Ágústsdóttur sagnfræðings og Guðna Valbergs arkitekts. Þau eru einnig höfundar bókarinnar Reykjavík sem ekki varð sem kom út árið 2014 en hún var endurprentuð í þrígang og er nú ófáanleg.

Tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis. 

  • Anna Dröfn Ágústsdóttir og Guðni Valberg, 2021
  • Bókarhönnun: Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson, Birna Geirfinnsdóttir)
  • Innbundin, 210x270mm
  • 320 blaðsíður