Litla bókabúðin í hálöndunum

Litla bókabúðin í hálöndunum

Litla bókabúðin í hálöndunum

3.200 kr.

Nina Redmond veit fátt betra en að gleyma sér í góðri skáldsögu. Hún vinnur á bókasafni í Birmingham þar sem hún nýtur þess að finna réttu bækurnar fyrir gesti safnsins. Þegar bókasafnið er sameinað öðru safni vegna hagræðingar stendur Nina á tímamótum; vill hún taka þátt í nútímavæðingu nýja safnsins eða ætlar hún að nota tækifærið og láta langþráðan draum um að reka eigin bókabúð rætast? Þegar hún rekst á auglýsingu í blaðinu um sendiferðabíl til sölu ákveður hún að láta slag standa. Bíllinn er reyndar í skosku hálöndunum ... Allt á þetta eftir að hafa örlagarík áhrif á líf Ninu.

Dásamlega falleg og hugljúf saga um ástir og vináttu og það hvernig bækur geta breytt lífi fólks.

Skoski metsöluhöfundurinn Jenny Colgan sló í gegn á Íslandi með þríleiknum í Litla bakaríinu við Strandgötu. Sjálfstæð saga.

„Ég held að ég hafi sjaldan verið jafn spennt og ég var að komast heim til þess að lesa þessa bók.“ Þórhildur Erla, Lestrarklefanum

  • The Little Shop of Happy Ever After, Jenny Colgan
  • Ingunn Snædal þýddi, 2017
  • Kilja, 135 x 200 mm
  • 368 blaðsíður