Mitt (ó)fullkomna líf

Mitt (ó)fullkomna líf

Mitt (ó)fullkomna líf

3.200 kr.

Kata Brenner lifir fullkomnu lífi. Eins og sjá má af Instagram-reikningnum hennar býr hún í London, starfar í auglýsingabransanum og ver frítíma sínum á smart kaffihúsum og dýrum veitingastöðum. Kannski fegrar hún lífið örlítið, kannski er vinnan ömurleg, yfirmaður hennar algjör martröð, herbergið sem hún leigir rúmur fermetri, samleigjendur hennar fávitar og maturinn sem hún borðar mestmegnis pakkasúpur og samlokur … en hver er ekki sekur um að nota smá filter á Instagram?

Þegar Kata svo missir vinnuna, mögulegt ástarsamband er slegið harkalega út af borðinu og hún neyðist til að flytja aftur á æskuheimili sitt í sveitinni renna á hana tvær grímur. Hversu lengi getur ung kona haldið fast í drauma sína þegar örlögin virðast staðráðin í að bregða stöðugt fyrir hana fæti?

Mitt (ó)fullkomna líf er ljúfsár og bráðfyndin saga um háleit markmið, fjölskylduflækjur og rómantík en fyrst og fremst um óvænta vináttu sem vex af ólíklegustu fræjum eftir metsöluhöfundinn Sophie Kinsella.

„Á sumrin vil ég lesa léttar bækur, bækur sem krefjast ekki of mikils af mér. Bækur sem ég get treyst að endi vel, sem fjalla um ástir og örlög, ungar konur að sigra heiminn og alla í kringum sig. Þess vegna kom þessi bók eftir Kinsella eins og himnasending og hún stendur mjög vel fyrir sínu sem skvísubók. Ég sinnti ekki heimilisverkum á meðan ég las bókina (og er að súpa seiðið af því þessa dagana), ég fór snemma í rúmið til að lesa, vaknaði fyrr til að lesa. Ég gerði í raun allt til að fá tíma til að lesa áfram um Kötu. Stundum er bara svo gott að lesa bók sem maður veit að endar vel.“ Katrín Lilja Jónsdóttir, Lestrarklefanum ★★★★★ 1/2

 

  • My Not So Perfect Life, Sophie Kinsella
  • Maríanna Clara Lúthersdóttir þýddi, 2020
  • Kilja, 135 x 200 mm
  • 494 blaðsíður