Sumareldhús Flóru

Sumareldhús Flóru

Sumareldhús Flóru

3.200 kr.

Flóra MacKensie hefur ekki komið á æskuslóðirnar á skosku eyjunni Mure síðan móðir hennar lést. Nú þarf hún að snúa aftur vegna verkefnis í vinnunni og með í för er yfirmaður hennar Joel sem hún er bálskotin í. Skyndilega er Flóra komin afur á æskuheimilið með bræðrum sínum og föður sem hún hefur varla talað við síðan hún fór burt. Dag einn finnur Flóra gamla stílabók með uppskriftum móður sinnar og um leið kviknar aftur áhugi og ástríða hennar fyrir matargerð. Áður en Flóra veit af er hún búin að opna matsölu í gömlu bleiku húsi við höfnina og hún gerir sér grein fyrir að hún verður að horfast í augu við mistök fortíðarinnar áður en hún getur haldið áfram með líf sitt.

Notaleg saga eftir skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan sem heillað hefur lesendur um allan heim með hugljúfum, fyndnum og lystaukandi bókum sínum. Sumareldhús Flóru er fimmta bók höfundar á íslensku og fyrsta bókin í Mure-bókaflokknum.

„Hugljúf og heillandi, mig langaði til að stinga af til eyjarinnar Mure. Hreinn unaður.“ Sophie Kinsella

  • The Summer Seaside Kitchen, Jenny Colgan
  • Ingunn Snædal þýddi, 2019
  • Kilja, 135 x 200 mm
  • 432 blaðsíður