Svartanótt
Svartanótt
4,490 kr.
Rósa þráir einfalt líf fjarri stórborginni og flytur ásamt írskum eiginmanni sínum í frumskóginn á Kyrrahafsströnd Kólumbíu. Þegar eiginmaðurinn tekur sér ferð á hendur til næstu borgar er Rósa ein í hálfköruðu, hurðarlausu húsi. Regnskógarparadísin við ströndina breytist smám saman í martröð því ógnir leynast á hverju strái: hættuleg dýr, háskalegur gróður og vafasamir nágrannar. Getur Rósa treyst eigin skilningarvitum?
Dáleiðandi og grípandi frumskógarsaga eftir Pilar Quintana, einn áhugaverðasta höfund Kólumbíu. Hætturnar og óbeisluð fegurð náttúrunnar eru áþreifanlegar. Áður hefur komið út á íslensku skáldsagan Tíkin eftir sama höfund.
Umsagnir um Tíkina:
„Stutt og hnitmiðuð frásögnin er eftir því áhrifarík lýsing á mótsagnakenndu mannlegu eðli þar sem fyrir miðju eru þrá, ást og grimmd.“ Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðinu ★★★★
„Höfundi tekst einstaklega vel að lýsa náttúrunni, hitanum og aðstæðunum á þann hátt að manni finnst maður kominn til Kólumbíu við lesturinn.“ Sæunn Gísladóttir, Lestrarklefanum ★★★★
„Hún gleypti mig alveg þessi saga … ég vissi ekki af mér fyrr en ég var búin. Hún heillaði mig alveg.“ Sunna Dís Másdóttir, Kiljunni
„Merkilegt er hvað þessi stutta saga … nær að mála breiða þjóðlífsmynd á þessum fáu síðum." Gauti Kristmannsson, Víðsjá
- Noche negra, Pilar Quintana, 2025
- Jón Hallur Stefánsson þýddi, 2026
- Bókarhönnun: Snæfríð Þorsteins
- Saumuð kilja, 110 x 180 mm
- 296 blaðsíður